Nú stendur yfir ráðstefnan Oikos 2014 í Stokkhólmi, Svíþjóð. Þar koma saman helstu sérfræðingar Skandinavíu á sviði vistfræði. Sandra Granquist sviðsstjóri líffræðirannsóknasviðs Selaseturs kynnir á ráðstefnunni niðurstöður sínar á áhrifum ferðamanna á Seli sem unnar voru á Vatnsnesi.
Fuglastígur á Norðurlandi vestra
Selasetur Íslands tók í byrjun árs að sér verkefnastjórn í verkefninu Fuglastígur á Norðurlandi vestra. Markmið verkefnisins er að undirbúa uppbyggingu fuglaskoðunarstígs á Norðurlandi vestra þar sem ferðamönnum er auðveldað aðgengi að hinum ýmsu fuglaskoðunarstöðum víðs vegar um landshlutann. Verkefnið er samstarfsverkefni Selasetursins, Ferðamálafélags V-Hún, Ferðamálafélags A-Hún, Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði, Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og Náttúrustofu Norðurlands vestra.
Verkefnið hlaut styrk frá Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra.
Verkefnið hófst formlega í lok árs 2013 og verður fyrsta áfanga lokið í árslok 2014.
Sandra Granquist kynnir niðurstöður rannsókna á Oikos 2014
Sandra Granquist selasérfræðingur á Selasetri Íslands mun kynna nýjustu niðurstöður rannsókna okkar á áhrifum ferðamanna á seli á Oikos ráðstefnunni sem haldin verður í Naturhistoriska rikismuséet í Stokkhólmi í Svíþjóð 3.-5. febrúar 2014.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.
Vinningshafi í happadrætti á Mannamóti 2014
Á Mannamóti markaðstofanna sem haldið var 23. janúar sameinuðust Selasetur Íslands, Selasigling og Kidka prjónastofa um glæsilegt happdrætti. Þeir sem settu nafnspjaldið sitt í pott gátu átt von á að vinna veglegan vinning.
Dregið hefur verið úr pottinum og var það Ágústa J. Jóhannesdóttir sem hreppir glæsilegan vinning:
- Siglingu með Selasiglingu fyrir tvo. www.sealwatching.is
- Aðgang fyrir tvo í Selasetur Íslands ásamt kaffi og kökusneið.
- 15 þús króna vöruúttekt hjá Kidka prjónastofu, stærstu prjónastofu landsins. www.kidka.com
Ágústa fær gjafabréfin send í pósti.
Við óskum Ágústu til hamingju með vinninginn og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir komuna á svæði Húnaþings vestra á Mannamóti 2014.
DNA greiningar á landselssaur
Sandra Granquist selasérfræðingur á Selasetri Íslands hefur nú hafið DNA greiningar á landsselssaur til að ákvarða fæðuval þeirra. Verkefnið er í samstarfi við Veiðimálastofnun, Náttúrugripasafnið í Stokkhólmi og Stokkhólmsháskóla. Greiningin fer fram á rannsóknarstofu Náttúrugripasafnsins í Stokkhólmi (Molecular Systematics Laboratory).