TripAdvisor viðurkenning

Selasetrið hlaut nýverið sína aðra viðurkenningu á stuttum tíma frá TripAdvisor ferðavefnum. Um er að ræða svokallað Certificate of Excellence fyrir árið 2015. Viðurkenningin er veitt vegna fjölda góðra umsagna gesta á TripAdvisor.

Viðurkenningin er Selasetrinu afar mikilvæg. TripAdvisor er vefur sem ferðamenn nota mikið til að afla sér upplýsinga um áhugaverða staði og því áríðandi að umsagnir séu góðar. Undanfarin misseri hefur mikið verið lagt upp úr góðri upplýsingagjöf og einnig er markvisst verið að biðja gesti um umsagnir á TripAdvisor. Þetta tvennt hefur leitt til stóraukins fjölda jákvæðra umsagna.

Certificate of Excellence Seal Center

 

Uppbyggingarsjóður styrkir Selasetur

Uppbyggingasjóður Sóknaráætlunar Norðurlands vestra veitti Selasetri Íslands á dögunum tvo myndarlega styrki.

Fyrri styrkurinn er stofn og rekstrarstyrkur upp á kr 2.3 milljónir. Styrknum er ætlað að standa straum af rekstri sýningar Selasetursins.

Síðari styrkurinn er verkefnastyrkur vegna verkefnisins Efling atvinnuli?fs og fjo?lgun starfa i? Hu?naþingi vestra. Verkefnið nær til uppsetningar ferðaskrifstofu á Selasetrinu sem hefur það hlutverk að markaðssetja svæðið og selja þjónustu ferðaþjónustuaðila til ferðamanna og ferðaskrifstofa. Fjárhæð styrksins er kr 3.6 milljónir.

Selasetrið þakkar Uppbyggingarsjóðnum mikilvægan stuðning við starfsemina.

 

Fuglastígskort fyrir Norðurland vestra

Út er komið fuglastígskort fyrir Norðurland vestra. Á kortinu eru merktir 17 staðir sem þykja áhugaverðir fyrir fuglaskoðunaráhugamenn allt frá Borðeyri í vestri að Þórðarhöfða í austri. Verkefnið er unnið af Ferðamálasamtökum Norðurlands vestra í samvinnu við Selasetur Íslands, Ferðamálafélag V-Hún, Ferðamálafélag A-Hún, Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði og Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Verkefnið er styrkt af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra og hefur verkefnastjórn verið á höndum Selaseturs Íslands. 

Fuglaskoðun er vinsælt áhugamál um heim allan og eru vinsældir hennar ört vaxandi. Fuglaskoðaðar, sem og annað ferðafólk sem hefur áhuga á náttúruskoðun, sækjast eftir að skoða áhugaverða staði þar sem náttúran er óspillt og fuglarnir lifa í sínu náttúrulega umhverfi. Fuglaskoðaðar ferðast margir hverjir gagngert til ákveðinna landa og svæða til fuglaskoðunar. Þetta er almennt séð hópur sem kaupir nokkuð mikla þjónustu og staldrar við í lengri tíma á hverjum stað en hinn hefðbundni ferðamaður.  Þetta er líka hópur sem ber virðingu fyrir náttúrunni og gengur vel um.

Vonir eru bundnar til að fuglastígurinn muni  efla ferðamennsku á Norðurlandi vestra með því að víkka út þann hóp ferðamanna sem hingað kemur sem og lengja þann tíma sem ferðamenn sækja landsvæðið heim. Stígurinn getur verið einn af vaxtarbroddum ferðaþjónustunnar og lengt ferðamannatímabilið snemma á vorin þegar til dæmis tún á Norðurlandi vestra fyllast af helsingjum, álftum og gæsum og á haustin þegar fuglar koma saman í stórum hópum til að undirbúa sig undir flugið á vetrarstöðvarnar. Norðurland vestra er mjög vel til fuglaskoðunar fallið og er aðgengi að fuglategundum sem þykja eftirsóknarverðar til skoðunar gott.

 Vinna við verkefnið hefur staðið í á þriðja ár. Sumarið 2014 var Ellen Magnúsdóttir fuglafræðingur ráðin til starfa og skoðaði hún vænlega staði og taldi tegundir sem þar sáust. Byggt á hennar athugunum voru staðirnir valdir sem eru á þessari fyrstu útgáfu kortsins. Vert er að vekja athygli á því að þessir staðir eru langt frá því að vera þeir einu sem koma til greina til fuglaskoðunar á svæðinu. Fjölmargir aðrir staðir eru áhugaverðir í þessu augnamiði og stefnt er á að fjölga þeim jafnt og þétt í síðari útgáfum. Sótt hefur verið um styrki til áframhaldandi athugana á fuglum á svæðinu til að halda áfram að þróa stíginn.

Kortinu verður dreift til ferðaþjónustuaðila á svæðinu án endurgjalds en mælst til þess að þeir selji kortið á vægu verði (200 kr.). Þannig má stemma stigu við því að mikið magn kortanna lendi í ruslinu en afar kostanðarsamt er að vinna verkefni af þessum toga. Kortinu verður einnig dreift á einni af stærstu fuglasýningum heims í Bretlandi næsta haust.

Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við fuglastíg á Norðurlandi eystra og er kortið sem kemur út á næstu dögum í sama útliti og kortið á Norðurlandi eystra. Þar með er náð fram samfellu og fuglaskoðarar geta þá hæglega sett saman þessa tvo stíga til að sjá enn fleiri staði á Norðurlandi öllu.

Kortið er hannað og sett upp af Blokkinni á Húsavík og prentað í Nýprent á Sauðárkróki.

Fuglastígskort af Norðurlandi vestra

 

Kampselur á Borgarfirði

Selasetrið fékk á dögunum tilkynningu um kampsel sem haldið hefur til í fjörunni á Borgarfirði eystra um þriggja vikna skeið. Selurinn hefur gert sig heimakominn en kampselir eru sjaldgæfir gestir á Borgarfirði.  Þetta er önnur tilkynningin um kampsel sem Selasetrinu hefur borist á skömmum tíma, sjá frétt hér.  Hinn fyrri sem tilkynnt var um sást á hinum enda landsins, í Veiðileysufirði á Jökulfjörðum.

Kampselurinn er stærri en landselur, en minni en fullvaxin útselur. Hans helsta sérkenni eru geysilega löng veiðihár. Hann er einnig mjög gæfur og rólegur, sem gerði hann að fyrirtaks bráð selveiðimanna áður fyrr. Nánari upplýsingar um kampseli má finna hér.

Við þökkum Borgfirðingum  fyrir upplýsingarnar en mikilvægt er fyrir sérfræðinga Selasetursins að heyra af því þegar flækingar sjást hér við land.

 Kampselur Selasetur Íslands

Mynd: Hafþór Snjólfur

Kampselur í Veiðileysufirði

Þann 13. maí sáu ferðalangar í skíðaferð á vegum Aurora Arktika Kampsel í fjörunni í Veiðileysufirði í Jökulfjörðum. Kampselir eru sjaldséðir gestir við Íslandsstrendur og eru auðþekktir af tignarlegu skeggi. Nánari upplysingar um kampseli má finna hér.

Við þökkum vinum okkar í Aurora Arktika fyrir upplýsingarnar en mikilvægt er fyrir sérfræðinga Selasetursins að heyra af því þegar flækingar sjást hér við land.

Ljósmyndari: Roland Tomascko