Ferðamálasamtök Norðurlands vestra standa fyrir námskeiði fyrir ferðaþjónustuaðila og áhugafólk um fuglaskoðun. Námskeiðið er sett upp sem hluti af þróun Fuglastígs á Norðurlandi vestra en í sumar mun koma út fyrsta fuglaskoðunarkortið yfir svæðið á vegum samtakanna.
Á námskeiðinu verður fjallað um vöruþróun á náttúrutengdri ferðaþjónustu með áherslu á góða umgengni gagnvart náttúru og samfélagi og fjárhagslegan hagnað fyrirtækis eða samfélags.
Farið verður í eftirfarandi efnisþætti og þeir ræddir í samhengi við þróun fuglaskoðunarstígs á Norðurlandi vestra.
- Hvað einkennir ferðamenn sem koma til fuglaskoðunar?
- Hvaða innviðir eru nauðsynlegir til að taka á móti slíkum ferðamanni?
- Hvaða þjónustu vilja/þurfa þeir sem sækjast eftir því að skoða fugla?
- Hvaða þekkingu þarf ég/ferðaþjónustuaðili að búa yfir?
- Hvaða skyldur hef ég sem býð upp á fuglaskoðunarstíg/-stað gagnvart bæði náttúru og samfélagi?
- Náttúrutúlkun og leiðsögn – leiðir til að tengja ferðamanninn við náttúruna.
- Gerð ferðavörunnar – hvað þarf til að ná á ferðamanninn?
- Samvinna fyrirtækja – mikivægi þess að efla sitt tengslanet til að styrkja sitt fyrirtæki.
Kennari á námskeiði: Kjartan Bollason, lektor við Ferðamáladeild Hólaskóla, umhverfisfræðingur og menntaður leiðsögumaður.
Námskeiðið fer fram á Hótel Blönduósi, þriðjudaginn 21. apríl kl. 10.00 til 16.00. Léttur hádegisverður og kaffi innifalið. Verð kr 5000.-
Skráning á netfangið selasetur@selasetur.is eða í síma 451 2345.
Skráning þarf að hafa borist í síðasta lagi kl 12 mánudaginn 20. apríl.