Á dögunum sótti Lotte Lille Selasetrið heim og tók viðtal við sérfræðinga þess um starfsemi Setursins. Afraksturinn má finna á bloggsíðu Lotte Lille sem fjallar um seli á norðurslóðum
Smellið hér til að lesa umfjöllunina
Á dögunum sótti Lotte Lille Selasetrið heim og tók viðtal við sérfræðinga þess um starfsemi Setursins. Afraksturinn má finna á bloggsíðu Lotte Lille sem fjallar um seli á norðurslóðum
Smellið hér til að lesa umfjöllunina
Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Unnur hefur 20 ára reynslu af rekstri og stjórnun, sem aðstoðarframkvæmdastjóri Hreyfingar, framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi, stofnandi og eigandi Vendum stjórnendaþjálfunar sem er leiðandi fyrirtæki á sviði markþjálfunar á Íslandi. Unnur hefur auk þessa komið að hinum ýmsu frumkvöðlaverkefnum. Unnur hefur BEd. próf frá KHÍ, Diploma í viðskipta- og rekstrarfræðum frá EHÍ auk þess að hafa hlotið víðtæka þjálfun í námskeiða- og fyrirlestrahaldi, lóðsun, þjálfun þjálfara og sölu- og sölustýringu. Unnur hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun (e. Executive coaching) frá Coach University og Opna Háskólanum í Reykjavík og hefur ACC vottun frá ICF, International Coach Federation.
Aðalfundur Selaseturs Íslands, haldinn í Dæli 6.júní 2013-06-06 kl 20.00
Formaður setti fund:
Stakk upp á Skúla Þórðarsyni sem fundarstjóra, samþykkt samhlj.
Sigrúnu Valdimarsdóttur sem ritara. Samþ. Samhljóða.
Ársæll fól Skúla Þórðarsyni stjórn fundarins.
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2012
Árið hefur gengið mjög vel og mikill uppgangur er hjá Selasetri Ísland
Meginhlutverk Selaseturs Íslands er að standa fyrir rannsóknum á Selum, nátturutengdri ferðaþjónustu, fræðslu um líffræði sela, og sinna upplýsingagjöf um ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra.
Haldnir voru 10 fundir á árinu 2012, 9 stjórnarfundir auk aðalfundar.
Farið yfir það helsta á fundunum 10
1. fundur í jan.
Framkvæmdastjóri fór yfir gang verkefna og annara mála hjá Selasetrinu, stofnaður hefur verið stýrihópur til að koma að kynningum og markaðsmálum í sveitarfélaginu undir forystu framkvædastjóra Selasetursins.
Ákveðið að ráða Erling Hauksson til selarannsókna frá 1.apríl.
Rætt um samvinnu og samstarf við Hvalasafnið á Húsavík.
2. fundur í apríl
Rætt um væntanlegan aðalfund, ráðningu starfsmsmanna á safnið í sumar o.fl.
Talað um að blása lífi í Wild North verkefnið, en það hefur dottið niður eftir að Hrafnhildur hætti sem framkvæmdastjóri, fundur verður í Skotlandi 29. apríl til 3. maí og er ætlaður m.a. til að loka 1. áfanga verkefnisins, Vignir og Pétur Jóns munu fara á fundinn. Vignir lagði fram 26 blaðsíðna áætlun um framtíð Wild North.
Fjallað um selaskoðunarstaði og mikilvægt er að hafa gott samband við landeigendur.
Pétur Jónsson mun sjá um sum verkefni stýrihópsins.
Rætt um samstarf við Hólaskóla og gerður verði samningur til 3ja ára um starfsmann sem er professor í ferðamálafræði með aðsetur á Hvammstanga, auglýst verði eftir starfsmanni.
Rætt um sýningu Selasetursins gera þarf ýmsar lagfæringar og sýningin þarf að vera meira lifandi. Rætt um auglýsingar, markaðsmál, fjáraflanir og styrki.
3. fundur maí
Rætt um ýmsar hugmyndir um breytingar á safninu bæði innandyra sem utan, hafa allar upplýsingar einnig á ensku og þýsku, færa leikbátinn af lóð Brekkugötu inn í safnið, merkja upplýsingamiðstöð, færa fánastengur o.fl.
4. fundur aðalfundur haldinn í maí
Ársæll stjórnaði fundi, Sigrún ritaði fundargerð, Guðmundur fór með skýrslu stjórnar, Vignir fór yfir reikninga félagsins og reikningar samþykktir.
Stjórnin var endurkosin og einnig endurskoðandi.
Samþykkt að stjórnin verði launalaus eins og verið hefur frá upphafi.
Selasetrið er að verða öflugt félag, um 7 starfsmenn verða í sumar, hugmynd kom um að opna hið nýja safn Selasetursins um Unglistahelgina.
5. fundur í maí
Stjórnin skipti með sér verkum. Ársæll formaður, Guðmundur varaformaður, Sigrún Ritari, Kristín og Jóhannes meðstjórnendur, Katharina og Helena varamenn.
6. fundur í júlí
Farið yfir stöðu mála, staða Selasetursins er ágæt, mikil aukning í aðsókn og fjölgun ferðamanna.
Búið er að senda greinagerð um starf sérfræðings í selarannsoknum hjá selasetrinu til Hafrannsóknarstofnunar.
Unnið að stefnumótun, hugmyndin er að skipta starfseminni í 3 deildir.
Sandra er yfirmaður líffræðirannsóknarsviðs og Erlingur sérfræðingur í selarannsóknum og verkefnastóri í ákveðin verkefni.
Rætt um seladráp sem veiðifélög standa fyrir, Selur er skotinn í stórum stíl, finna þarf leið með þeim sem fá seli í net sem meðafla og forsvarsmönnum veiðifélaga í laxveiðiám svo fá megi tölur um veidda eða skotna seli.
7. fundur í október
Samstarfið gengur vel við Hólaskóla, Veiðimálastofnun og Ferðamálafélagið.
Rætt um styrki og umsóknir
Sandra er ennþá í námi sem lýkur 2014, hún kemur af og til Íslands annars sinnir hún deildarstjórastarfi líffræðirannsóknardeildar frá Svíðjóð.
Hugmynd að verkun beinagrinda Sela og Hnýsu er í vinnslu.
Fjallað um ýmsar hugmyndir til að laða að ferðamenn í safn setursins, einnig að efla upplýsingamiðstöðina þar sem eru leiðbeiningar og kynning á ferðaþjónustu á svæðinu.
Ákveðið að framlengja samning við Vinnumálastofnun vegna vinnu Mitch.
Hafinn er undirbúningur að koma upp steyptum staurum kringum planið framan við safnið.
8. fundur í des.
Rætt um sameiginlegan starfsmann með Hólaskóla, kominn er áhugaverður kandidat um starfið og er það í vinnslu.
Farið yfir tilurð stýrihóps um feraþjónustu í Húnaþingi vestra, styrkumsóknir og það starf sem þar hefur verið unnið.
Rætt um samstarf við Veiðimálastofnun, rætt um styrkveitingu um þróun á Selafælu og samstarfsaðila að því verki, og fleira tengt Selum.
Rætt um safnið og upplýsingamiðstöðina, stækkun á anddyri og fleira.
9. fundur í des.
Farið yfir breytingar á húsnæðinu og hugmyndir um að gera sýninguna athyglisverðari og meira spennandi fyrir gesti og að upplýsingamiðstöðin væri meira uppfræðandi fyrir ferðamenn um hvað væri í boði í héraði.
10. fundur í des.
Rætt um samstarfið við Veiðimálastofnun og sameiginlegan starfsmann okkar.
Tilvitnun í fundargerðir lokið.
Rekstrarárið kom nokkuð vel út þrátt fyrir mikil umsvif eins og sjá má í fundargerðum. Nokkurt tap varð á rekstrininum eða um 650 þúsund krónur, engin ný lán hafa verið tekin og skuldir félagsins hafa lækkað um 2 milljónir.
Stjórn Selasetursins þakkar framkvæmdastjóra og starfsmönnum Selasetursins fyrir frábær störf á liðnu ári.
Fyrir hönd stjórnar Ársæll formaður.
Selasetur Íslands á Hvammstanga
Selasetur Íslands var stofnað árið 2005 og er hlutverk þess að standa fyrir rannsóknum á selum og náttúrutengdri ferðaþjónustu. Selasetrið stundar margvíslegar rannsóknir, ásamt því að reka fræðslumiðstöð fyrir almenning og ferðamenn um líffræði og hegðun sela við Ísland. Selasetrið safnar sama heimildum um selveiðar, vinnslu selaafurða og hlunnindabúskap. Selasetrið stuðlar að uppbyggingu sjálfbærra náttúrutengdra ferðaþjónustu og stendur fyrir rannsóknum á því sviði. Selasetrið er í margvíslegu samstarfi við vísindastofnanir og einstaklinga á sínu sviði bæði innanlands og erlendis. Aðal samstarfsaðilar í dag eru Veiðimálastofnun, Háskólinn að Hólum, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Eining er Selasetrið í samstarfi við erlendar stofnanir og háskóla eins og Stokkhólmsháskóla.
Með samning við Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sem gerður var þann 27. ágúst 2010 var ákveðið að rannsóknir á sel við Ísland verða framvegis undir umsjón Selaseturs Íslands og unnar í samstarfi við Veiðimálastofnun og Hafrannsóknarstofnun auk þess sem samvinna og samráð verði haft við aðrar rannsóknastofnanir, Bændasamtök Íslands, veiðifélög og Félag selabænda eftir því sem tilefni er til. Í samningnum felst meðal annars að Selasetrið ber ábyrgð á og stendur að árlegu stofnstærðarmati selastofnanna við Ísland, auk þess að halda utanum upplýsingar varðandi veiðar á selum við Ísland.
Meginrannsóknir Selasetursins eru á selastofnum við Ísland. Meðal annars snúa rannsóknirnar að vöktun á stofnstærð útsels- og landsels við Ísland og ferðum annarra selastofna til Íslands og íslenskra stofna til nágrannalandanna. Sérfræðingar Selasetursins á sviði líffræðirannsókna eru Sandra Granquist dýraatferlisfræðingur og doktorsnemi , Leah Burnd dr í ferðamálafræðum og Erlingur Hauksson sjávarlíffræðingur og selasérfræðingur.
Helstu rannsóknir sem Selasetrið vinnur að eru eftirfarandi
Selasetrið standur fyrir umfangsmiklum talningum á landsel og Útsel við Ísland
stofnstærðarupplýsingar eru mikilvægar vegna margvíslegra rannsókna á náttúru landsins. Talningarnar eru einnig hluti af vöktun NAMMCO (Norður – Atlantshafs sjávarspendýraráðið) á stofnstærðum sela við Norður-Atlandshafið.
Verkefnið fór af stað árið 2009. Markmið rannsóknanna er að áætla áhrif sela sem dvelja á ósasvæðum á laxfiskstofna og laxveiði í ám.
Frá árinu 2008 hefur Selasetrið unnið að því að kanna áhrif aukningar ferðamanna á landselsstofninn á ákveðnum selaskoðunarstöðum með margvíslegum hætti.
Rannsóknin er hluti af alþjóðlega verkefninu The wild north (Hið villta norður). Verkefnið The wild north fór af stað á Selasetri Íslands árið 2008 og hefur síðan þá þróast áfram og er núna alþjóðlegt verkefni með þátttakendum frá Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi, auk ráðgjafa frá Skotlandi og Kanada. Meginmarkmið TWN verkefnisins er að vinna að sjálfbærri þróun á náttúrtengdri ferðaþjónustu á norðurslóðum og stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustunnar með sem minnstum neikvæðum áhrifum á vilt dýr og náttúru hvers svæðis. Mótaðar hafa verið umgengisreglur fyrir ferðamenn, sem einnig er hægt að nýta á öðrum stöðum. Unnið er að öðrum hluta verkefnisins
Starfsmenn Selasetursins birtu nýlega vísindagrein um verkefnið í vísindariti New Issues in Polar Tourism.
Það lagaumhverfi sem selveiðar eru háðar í dag er mjög óljóst og vill Selasetrið vinna að því að skýra hver staðan er og leggja fram tillögur um hvernig slíkum lögum og reglum verði best háttað. Selasetrið veitti því umsögn um Þingmál. 46 sem er um breytingu á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994, með síðari breytingum. Selasetrið hefur skilað inn viðarmikilli umsögn um lögin. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við hagsmunaaðila, svo sem Bændasamtök Íslands, Selveiðibændur, Samtök eigenda sjávarjarða, Skotvís og Landsamband veiðifélaga og aðra sem málið varðar.
Erlingur Hauksson fór fyrir hönd Selaseturs Íslands á fund NAMMCO (Norður Atlantshafs sjávarspendýraráðsins) sem haldinn var í Svolvær í Lofoten í norður Noregi dagana 11-13. september 2012. Þátttaka Íslendinga í fundum NAMMCO er mikilvægur þáttur í því að tengja saman rannsóknir og upplýsingar um lífríki hafsins við norðanvert Atlantshaf. En selasetrið er nú með formlega skipaðan fulltrúa í vísindanefnd NAMMCO.
Selasetrið og Biopol ehf á Skagaströnd eru í samstarfi um að kanna fæðu sela á norðvesturmiðum og bera saman við eldri fæðugögn frá sama svæði sem safnað var fyrir síðustu aldarmót.
Unnið er að því að gera þeim viðamiklu og fjölmörgu rannsóknum sem Selasetrið vinnur að betri skilum í fræðsluhluta sýninga safnsins. M.a. verður gerð grein fyrir skráningum á sellátrum við Ísland. Eins eru til mikið af rannsóknargögnum um hin ýmsu verkefni sem vert er að greina frá
Einnig eru fjölmörg önnur verkefni í gangi og í burðarliðnum hjá Selasetrinu.
Bætt aðstaða og endurskipulag fræðslusafns og upplýsingamiðstöðvar
Gestakomur í Maí
Gestir Maí 2013 |
Peningar Maí 2013 |
Meðal eyðsla |
Prósentuhlutfall Inn á safnið |
||||||
Safnið |
Info |
samtals |
Safnið |
Info |
samtals |
||||
431 |
501 |
932 |
197350 |
387080 |
584430 |
627,1 |
46% |
Í maí í fyrra voru gestir samtals 138…… salan inn á safnið var kr130.129.- samanborið við 584.430.- núna ……..
Gríðarleg aukning í maí bæði í heimsóknum og peningum , eins hefur hlutfall gesta sem fara inn á safnið aukist en það var 27% í fyrra. Meðaleiðslan allt árið í fyrra pr. einstakling var 348kr .
6,7 sinnum fleiri gestir og 4,5 sinnum meiri tekjur.
þetta er mjög ánægjulegt. Vonandi heldur þetta svona áfram J
Selasetur Íslands hefur tekið að sér mjög mikilvægt hlutverk varðandi selarannsóknir við Ísland og stefnir að auknu rannsóknarstarfi á næstu árum og miðlun upplýsinga um þennan mikilvæga sjávarspendýrastofn við strendur Íslands.
Selasetrið leggur áherslu á að hafa færustu vísindamenn á sínum snærum og að vinna í nánu samstarfi við rannsóknarstofnanir og sérfræðinga. Fræðsludeild Selasetursins miðlar síðan upplýsingum um rannsóknirnar og lifnaðarhætti sela til alþjóðasamfélagsins, almennings og ferðamanna.
Skúli taldi nauðsynlegt að aðilar á landsbyggðinni verði vakandi og virkir í umræðu um náttúrupassa eða aðra gjaldtöku af erlendum ferðamönnum. Fleira ekki fyrir tekið
Fundi slitið
Selatalningin mikla 2013
Sunnudaginn 21. júlí verður Selatalningin mikla haldin í sjöunda sinn á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Við hvetjum alla til að taka þátt, hvort sem þú ert heimamaður eða ferðamaður á ferð þinni um landið. Talningin felst í því að telja alla sjáanlega seli á Vatnsnesi og Heggstaðanesi. Svæðinu er skipt upp í mörg misstór svæði og það finna allir vegalengd við sitt hæfi. Selatalningin mikla er skemmtileg upplifun og það er vel þess virði að koma og taka þátt í rannsóknarstörfum setursins. Eftir talninguna verða kaffiveitingar í boði fyrir þátttakendur.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína í síðasti lagi 17. júlí. Til að skrá sig og fá nánari upplýsingar um tímasetningu og fleira má hafa samband á netfang selasetur@selasetur.is eða í síma 451-2345.
Ath! Talningin hentar ekki börnum undir 5 ára og börn á milli 5 og 15 ára mega bara taka þátt í fylgd forráðamanna.
The Icelandic Seal Center ( Selasetur Íslands ) is working on an exciting project this winter time, the production of 2 male Harbour Seal skeletons and a Harbour porpoise skeleton for new and exciting exhibition displays in our museum, aswell as donating one seal skeleton to be displayed in the Húsavík Whale Museum.
The work is being carried out by a former volunteer at the center, Ester, from Spain and we are very happy to have her back with us!
The work will be completed by the May 1st opening of the museum and Visit Hunathing information center so make sure you come and check us out!