Niðurstöður úrSelatalningunni miklu 2013
Selatalningin mikla var haldin á vegum Selaseturs Íslands þann 21. júlí s.l. Talningin hefur farið fram árlega síðan árið 2007 og var þetta því sjötta talningin. Markmið talningarinnar er að fylgjast með fjölda og staðsetningu landsela í kringum Vatnsnes og Heggstaðanes, ásamt því að gefa almenningi tækifæri á að kynnast og taka þátt í rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands.
Selir voru taldir á allri strandlengjunni á Vatnsnesi og Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra, samtals um 100km. 30 manns tóku þátt í talningunni og fóru talningarmenn gangandi, ríðandi eða á báti. Talningin byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða, en með þessu móti gefst færi á að kanna stórt svæði á mjög stuttum tíma.
Í ár sáust samtals 757 selir á svæðinu (aðallega landselur). Það eru aðeins fleiri selir en sást 2012, en þá voru talin 614 dýr. Hinsvegar hefur fjöldin árin þar á undan verið yfir 1000 dýr. Mikilvægt er að hafa í huga að þessar talningar eru aðeins vísbending um lágmarksfjölda þeirra sela sem dvelja á þessu svæði. Margir þættir hafa áhrif á fjölda sela sem liggja uppi í látrunum og veður er einn þeirra.
Athuga ber að tölurnar segja ekki til um ástand landsselsstofns í heild. Stofnstærðarmat á landsel fór síðast fram 2011 og hefur farið fram reglulega síðan árið 1980 og þá hefur verið talið um land allt úr flugvél. Niðurstöður þeirra talniga benda til þess að landselstofninn hafi staðið í stað síðan árið 2003 og sé tæplega 12 þúsund dýr.