Nýir sérfræðingar
Þann 1. júlí hófu störf við Selasetur Íslands tveir nýir sérfræðingar á sviði selarannsókna. Þeir munu starfa undir handleiðslu Söndru Granquist, deildarstjóra líffræðarannsóknasviðs við Selasetur Íslands.
Sérfræðingarnir eru Dr Alastair Baylis og Jóhann Garðar Þorbjörnsson.
Dr Alastair Baylis útskrifaðist með doktorsgráðu frá Háskólanum í Adelaide í Ástralíu árið 2008. Aðalviðfangsefni doktorsritgerðar hans var fæðunám loðsela (New Zealand fur seals) í Suður-Ástralíu. Al hefur áður unnið fyrir UBC sjávarspendýrarannsóknastöðina á Pribilof-eyjum, í Alaska og á Falklandseyjum, en þar stundaði hann rannsóknir á sæljónum (southern sea lions) og Suður-Amerískum loðselum, en þetta eru stofnar sem höfðu fram að þeim tíma verið mjög lítið rannsakaðir. Aðaláhugamál hans á sviði selavistfræði eru m.a. söguleg vistfræði, stofnstærðarbreytingar, stofnerfðafræði og fæðuvalsrannsóknir.
Jóhann Garðar Þorbjörnsson útskrifaðist með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2013. Árið 2015 lauk hann meistaranámi frá Háskólanum á Hólum, þar sem hann rannsakaði áhrif kafara á vistkerfi grunvatnsgjárinnar Silfru á Þingvöllum. Í meistaranámi sínu dvaldi hann sex mánuði á Svalbarða þar sem hann stundaði skiptinám á sviði heimskautalíffræði. Jóhann hefur sérstakan áhuga á áhrifum mannsins á lífkerfi.
Við bjóðum þá Al og Jóhann hjartanlega velkomna, og óskum þeim velfarnaðar í starfi.
Önnur meistararitgerð varin
Miðvikudaginn 27. apríl varði Georgia Clack meistaraverkefni sitt við Háskólasetur Vestfjarða. Verkefni hennar heitir The impact of tourism on harbour seals and their distribution around Iceland.
Leibeinendur Georgiu voru Sandra M. Granquist, deildarstjóri líffræðirannsókna við Selasetur Íslands og selasérfræðingur Veiðimálastofnunar; og Erlingur Hauksson, sjávarlíffræðingur hjá Vör sjávarrannsóknarsetri við Breiðarfjörð.
Meistararitgerð varin
Í dag, þriðjudaginn 19. apríl, ver Elin Lilja Öqvist meistaraverkefni sitt við Stokkhólmsháskóla. Verkefni hennar heitir Whaling or watching, sealing or seeing? A study of interactions between marine mammal tourism and hunting in Iceland.
Leibeinendur Elinar eru Sandra M. Granquist, deildarstjóri líffræðirannsókna við Selasetur Íslands og selasérfræðingur Veiðimálastofnunar; og Anders Angerbjörn, prófessor við Stokkhólmsháskóla.
Samningur í höfn
Stórum áfanga í sögu Selaseturs Íslands var náð með undirritun samnings setursins við Hafrannsóknastofnun þann 11. apríl 2016.
Samningurinn er upp á 40 milljónir króna, þar af eru 10 milljónir eingreiðsla stofnkostnaðar vegna tækjakaupa og standsetningar húsnæðis, og 30 milljónir renna til líffræðirannsókna á selastofninum við Íslandsstrendur. Vonir standa til að rannsóknastyrkurinn verði áframhaldandi.
Á myndinni sjást, frá vinstri: Sandra Granquist, deildarstjóri líffræðirannsókna við Selasetur Íslands; Ársæll Daníelsson, stjórnarformaður Selaseturs Íslands; Ólafur S. Ástþórsson, settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar; Sólmundur Már Jónsson, aðstoðarforstjóri – fjármál, hjá Hafrannsóknastofnun.
Selasetrið vill þakka öllum þeim fjölmörgu sem að málinu hafa komið, og lítur björtum augum til framtíðar selarannsókna á Íslandi.